03/05/2006

Sáuði.....

auglýsinguna núna fyrir fréttir á Stöð 2??

 

Þessi auglýsing var algjör snilld!!!  Við Hlynur sátum bara og göptum:) 

 

Allavega á hreinu að V dagurinn á mína athygli núna ;)

36....

Búnir að skoða síðuna mína í dag og eina manneskjan sem hefur kommentað er Bella....

Spurning um að fara bara að læsa síðunni sinni ef fólk getur ekki séð sóma sinn í því að einu sinni kommenta sko ;)

Fór í ...

grill til Oddnýjar og Sjonna síðasta föstudag enda ekki hægt annað en að grilla í veðrinu sem var þá;)  Þau höfðu nefnilega fjárfest í nýju grilli og þessu fína garðsetti... en skemmst er frá því að segja að þau áttu það nú ekki lengi eftir að ég mætti í heimsókn...   Mín nottlega hlammaði sér í fyrsta stólinn sem hún sá og rústaði honum eins og hún hefði aldrei gert annað ;)

Í gær voru svo þrumur og eldingar til að vega upp á móti góða veðrinu sem er búið að vera:)

Held ég sé loksins búin að finna bloggið sem ég er búin að leita að lengi lengi lengi lengi... á sennilega blog á mínu nafni á öllum heimsins bloggsíðum en hef aldrei fundið neitt með öllum þeim fídusum sem henta mér... reyndar er það eina sem mér finnst vanta á þetta er broskallar en ég sosum fer nú ekkert að grenja þó mig vanti þá sko...

02/05/2006

Hvernig passar þetta...??

:):):):)

Hvað þarf margar *hrúta* til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en það þarf margar perur.

Hvað þarf mörg *naut* til að skipta um ljósaperu?
Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu.

Hvað þarf marga *tvíbura* til að skipta um ljósaperu?
Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem kemur inní herbergið.

Hversu marga *krabba* þarf til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir atburðinn.

Hversu mörg *ljón* þarf til að skipta um ljósaperu?
Ljón skipta ekki um perur, í mesta lægi heldur hann henni á meðan heimurinn snýst í kringum hann.

Hversu margar *meyjur* þarf til að skipta um ljósaperu?
Sjáum nú til: eina til að undirbúa peruna, aðra til að skrifa niður hvenær ljósaperan sprakk og hvenær hún var keypt, aðra til að ákveða hverjum er um að kenna að peran sprakk, tíu til að þrífa húsið á meðan hinir skipta um peruna.

Hversu margar *vogir* þarf til að skipta um ljósaperu?
Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti að virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera, tvo ef hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta peran? Mikið af pælingum og áhyggjum yfir því.

Hversu marga *sporðdreka* þarf til að skipta um ljósaperu?
Og hver veit það? Afhverju viljiði vita það? Eruði kannski lögreglumenn?

Hversu marga *bogamenn* þarf til að skipta um ljósaperu?
Sólin skín, það er gott veður, allt lífið framundan og þið hafið áhyggjur af einhverri ljósaperu???

Hversu margar *steingeitar* þarf til að skipta um ljósaperu?
Enga. Steingeitur skipta ekki um ljósaperur því eftir góðar og athyglisverðar samræður mun ljósaperan skilja að það er miklu skynsamlegra að hún skipti um sig sjálf.

Hversu marga *vatnsbera* þarf til að skipta um ljósaperu?
Það koma helling af vatnsberum í keppni um hver þeirra er sá eini sem getur gefið heiminum ljós aftur.

Hversu margar *fiska* þarf til að skipta um ljósaperu?
Afhverju, fór ljósið?

Prufa....

Á maður ekki bara að færa sig??  Líst ferlega vel á þetta bara:)

Previous 1 2 3 4 5 6 7 8