30/05/2006

Frumburðurinn...

já eða segir maður kannski bara einkasonurinn :Þ  er að verða 9 ára á föstudaginn!!! 9 ÁRA!!!!!  Ég er ekki alveg að kaupa þetta... mér er enn í mjög fersku minni nóttin sem ég átti hann... og ég heyrði reyndar á pabba á föstudaginn að hún er honum líka í fersku minni... ;)  Mér finnst bara eins og þetta hafi gerst í gær...!!!

Allt í rólegheitum hér í firðinum fagra as usual :)  Bellz kíkti á mig hér í síðustu viku og slappaði af :)  Fannst soldið leiðinlegt að hún skyldi þurfa að fara aftur en ... that´s life....

Fórum í Skriðuklaustur á síðasta miðvikudagskvöld ég og minn spússi ásamt fríðu föruneyti úr Glitni og Sjóvá:)  Þar fengum við alveg skuggalega gott að borða þó sjávarréttasalatið sem var í forrétt hafi ekki endilega verið minn bolli af te...

Við fórum í mjög fyndinn leik þarna uppfrá (alltílagi að gera sig að fífli ef maður er útí óbyggðunum;) )  Við stelpurnar vorum dregnar í annað herbergi og ein dregin með bundið fyrir augun í einu til baka... þar vorum við látnar krjúpa á hnén og þreifa á karlmannskálfum.... :Þ  við áttum að finna okkur mann þar.... en skemmst er frá því að segja að ég þreifaði á þeim öllum vel og lengi og valdi mér einn:)  En ég tilkynnti nú þessum á hægri endanum að hann væri nú með kvenmannslappir (var sko hreint ekkert viss um að þetta væri karlmaður yfir höfuð!) og viti menn ég valdi mér Jóhannes Pálsson (manninn hennar Betu) (spaugilegt fyrir þá sem vita hver hann er:Þ)  En maðurinn með kvenmannsleggina var enginn annar er Hlynur:Þ  Ég er semsagt búin að sofa í gestaherberginu síðan á síðasta miðvikudag;)

24/05/2006

Vúhúúú!!!!!!!!!!

Vinnudagur-frídagur-vinnudagur-helgi :)  Gæti ekki hljómað betur er það:)

Svo fyrir okkur skrýtnu þá er á að byrja að sýna Melrose Place og Beverly Hills 90210 aftur núna í byrjun júní :)  Hahah það verður nú eitthvað spaugilegt að kíkja á þessa þætti aftur sem maður gat bara alls ekki misst af á sínum tíma!!!  Held að manni muni þykja þeir ansi hallærislegir í dag:Þ

Mér finnst ég orðin soldið gömul.... eða eiginlega ekki ég sko... heldur sumir sem eru á svipuðum aldri og ég... t.d er Bellz hérna fyrir austan núna og hún á orðið bara 2 börn.... ég meina bara með krakkastóðið á eftir sér..;)  Jöminn;)

Kannski kominn tími á að sitja heima og hekla dúka og svoleiðis dót...

Manneskja dagsins er Silvia Nótt fyrir að vera Kreisí in da kókónött!

21/05/2006

Svar-tækni ehf!!!

Mig langar að segja ykkur frá viðskiptum mínum við Svar-tækni ehf.
Þannig er að við hjónaleysin keyptum okkur 23” lcd sjónvarp hjá þeim í lok árs 2004.

Þá voru þessir skjáir ennþá mjög dýrir og borguðum við tæp 130.000 krónur fyrir og borguðum á Mastercard raðgreiðslum sem þýðir að það bætist 1 ár við ábyrgðina á sjónvarpinu.

Núna í síðustu viku hætti allt í einu að kvikna á fína lcd sjónvarpinu þannig að ég fer með það til þeirra (bý úti á landi) og þeir lofast til að kíkja á það fyrir mig.

Svo er hringt í mig á föstudaginn frá Svar-tækni ehf og mér sagt að þeir séu tilbúnir að láta mig fá Viewpia 26”  sjónvarp og við greiðum 30 þúsund á milli þar sem við höfum sennilega keypt síðasta tækið af þessu sem við áttum og ekki hægt að fá neitt í það. Við vorum ekkert að fara að kaupa okkur nýtt sjónvarp og vorum ekki alveg tilbúin að greiða 30 þúsund fyrir nýtt sjónvarp sem samt var tæplega 20 þúsund krónum ódýrara en upphaflega sjónvarpið sem við keyptum, þeir reyndar buðu okkur Panasonic 26" sjónvarp á 50 þúsund á milli.

Ég ákveð að hringja í Neytendasamtökin og tékka á hver okkar réttur er. Sú sem er fyrir svörum þar segir okkur að skv. Neytendalögum eigum við ekki að verða fyrir neinu tapi af þessum kaupum þannig að annaðhvort skuli hann endurgreiða okkur allan peninginn svo við getum verslað okkur sjónvarp annarsstaðar eða láta okkur bara hafa betra sjónvarp endurgjaldslaust.

Minn heittelskaði hringir þá í Svar-tækni og talar við forstjórann/eigandann þar og segir honum hvað stúlkan hjá neytendasamtökunum hefði sagt. Maðurinn bauð okkur þá að gera við sjónvarpið (sem áður hafði ekki verið hægt að fá neina hluti í) eða við gætum fengið Panasonic 26” sjónvarpið (http://svar.is/vorur/?path=/resources/Controls/24.ascx&Groups=67) og við greiddum 30 þúsund krónur á milli. Þar sem við sáum fram á að vera sjónvarpslaus næstu vikurnar ef við létum gera við það að þá ákváðum við að taka Panasonic sjónvarpið sem okkur var boðið að greiða á milli (þó við vissum að þeim væri nú sennilega ekki leyfilegt að gera það skv. Neytendalögum).

Við biðjum þá að setja sjónvarpið í næstu vél til okkar svo við værum nú ekki sjónvarpslaus yfir helgina. Sjónvarpið kemur og allt í lagi með það.

Nema hvað ... þegar við förum að kíkja yfir reikninginn hafði verið tekið 50 þúsund krónur af Mastercard kortinu mínu fyrir sjónvarpinu! Svo er spurningin hvort við fáum þessar 20 þúsund krónurnar einhverntímann til baka???

Vildi bara segja ykkur þessa sögu til að þið þyrftuð ekki að láta taka ykkur í ra**gatið eins og við!

Endilega segið mér hvað ykkur finnst um þetta?

19/05/2006

Freakin´ fúl..................................

yfir að Silvia Nótt skuli ekki hafa komist áfram:'(  Mér fannst hún kúl á sviðinu....  þó að Grikkir hafi ekki verið jafn sáttir við hana;)

Þessi helgi verður mömmuhelgi hjá mér... þe bÍvar og Bellz að koma austur í heimsókn:)  Skil samt ekki í þeim að koma ekki frekar Sjómannadagshelgina:Þ  Aldrei að vita nema þau skelli sér bara þá líka ;)

Skellti mér í borgina í gær ... og auðvitað í IKEA í leiðinni ..:Þ  Keypti mér alveg fullt af glösum þannig að það er eins gott að við hröpuðum ekki á leiðinni austur aftur því þá hefðu öll nýju glösin mín brotnað;)

Dæmisaga dagsins er um kettlinginn sem var sagt að hamingjan byggi í skottinu á honum.... kettlingagreyið eyddi fyrsta árinu sínu í að elta á sér skottið til að ná í hamingjuna og var orðinn heldur ringlaður þegar hann áttaði sig á að hann þyrfti ekki að ná skottinu til að verða hamingjusamur þar sem skottið væri áfast :)

16/05/2006

Allt á fullu............

allsstaðar ... ekkert nema.... man ekki meira af þessum texta :Þ

En eins og segir í fyrirsögninni er allt að gerast í augnablikinu :) 

Ég var svo heppin að vera að eignast nýja "frænku" í morgun ;)  Hún Ásta mín eignaðist semsagt stelpu í morgun og vil ég að sjálfssögðu nota tækifærið til að óska henni og Palla til hamingju með prinsessuna:) Þó ég viti að þau eru nú kannski ekki hér inni til að taka á móti hamingjuóskunum ;)

Svo er hún Bella mín að koma austur í heimsókn til "mín" (efa að hún sé neitt að koma til að heimsækja ættingjana) um helgina og ætlar að stoppa hjá "mér" í heila viku :)  Er alveg ferlega ánægð að fá hana aðeins til mín;)

Oggggg svo ætla ég að bregða mér aðeins í bæinn á morgun... að vísu bara örskotsstund þar sem ég fer á hádegi og kem aftur um kvöldmat :Þ  En samt fínt til að brjóta upp daginn :Þ

Jamm og svo er bara Silvia Nihgt á fimmtudaginn.... allt brjálað inná www.esctoday.com útaf henni.... serverarnir bara too busy og allar græjur ;) 

Fannst við hæfi að pósta þessari frétt hérna af www.mbl.is þar sem mér fannst hún alveg ógeðslega kostuleg!!

Silvía tók fyrir nefið

Fleiri en Silvía Nótt hafa vakið athygli í aðdraganda Evróvisjón í Aþenu en finnska hljómsveitin Lordi hefur fengið sinn skerf af umfjöllun. Silvía Nótt segist hrifin af þessum búningaklæddu Finnum, sem hún hitti í fyrsta sinn í gær. Hennar fyrstu viðbrögð voru þó að taka fyrir nefið. Eftir fundinn brast íslenska Evróvisjón-stjarnan í grát og hafði á orði að þetta væri eflaust í fyrsta skipti sem fallegasta kona veraldar hitti ljótasta fólk í heimi. Keppnin fer fram á fimmtudag.

Setning dagsins er "Silvia Night shinin´ in the light"

15/05/2006

Helgarfjandinn.....

á enda... rétt að byrja... búin að hafa það svo asskoti ljúft þessa helgina:)  Hlynzi minn kominn í land og sonna;)

Ég er græn af öfund í augnablikinu.... pabbi hringdi í mig í gær.... hann er staddur í Barcelona .... þau höfðu skellt sér út að borða ... og hitt Montoya.... mér finnst hann ofsa sætur!!!  En ég verð bara að sætta mig við að fá að sjá mynda af honum í staðinn *grenj*

Það er að byrja ný stelpa í vinnunni á morgun.... ég á að kenna henni ... við erum að tala um óþolinmóðustu manneskju í heimi hérna... og kerfin okkar eru ekki nema svona 30 talsins sem ég þarf að kenna á!!!  Stelpugreyið á örugglega eftir að hata mig útaf lífinu eftir fyrsta vinnudaginn sinn.... 

Málsháttur dagsins er "Hver er sinn skósmiður"

12/05/2006

Helgin á ....

næsta leiti :)  Er nokkuð hægt að vera annað en glaður yfir því :)

Sneiðmyndatakan gekk svona glimrandi vel... þvílíkur munur að þurfa ekki að keyra alla leið til Akureyrar til að fara í svona... þetta tekur nú ekki nema 10-15 mín að gera þetta!!!  En vinstra heilahvelið fannst.... ég er semsagt með það ... það sást bara ekki fyrir stálplötunni ;)

Ég sá stelpu í dag... sem er nú ekki í frásögur færandi ... nema hún var í Buffalo skóm!!.... hvað er það!!!  Verð reyndar að taka það fram að þetta var meira að segja eftirlíking.... oj bara!! Þessir skór eiga heima í tískuslysasöfnum en ekki á fótum á fólki árið 2006!!!! 

En fyrst ég er farin að tala um Buffalo skóna  (skónna :Þ) þá má ég nú til með að spurja ykkur hvort þið munið eftir Art skónum sem voru og hétu!!! Hahahah!!! Maður getur nú látið gabba sig til að fara í allskonar lummóheit ;)

Stafsetning dagsins er skóddnir ;)

11/05/2006

Ég er svo....

með yfirskilvitlegar gáfur þrátt fyrir allt saman :Þ  Eða allavega þegar kemur að Ástu Kristínu ;)

Vinkonan fór nefnilega í sónar í dag og þá var orðið mjög lítið legvatn og eitthvað meira ves... þannig að henni hefur verið bannað að vinna :,(   

Ég var að hlusta á útvarpið á leiðinni í vinnuna í morgun... það var verið að tala við mann sem var með orðið "þarna" á heilanum sem hefði ekki farið neitt sérstaklega í taugarnar á mér að öllu jöfnu NEMA.... hann sagði alltaf "þana" og "þanna"  þetta er bara málhelti af ömurlegustu gerð!!! Svo fyrst ég er byrjuð að láta málhelti fara í taugarnar á mér þá vil ég endilega benda á að maður segir ... skóna... en EKKI skónna!!!! 

Það liggur við að mér finnist þetta meira óaðlaðandi heldur en stafsetningarhelti... en það á sér þó stundum skýringar eins og lesblindu og skrifblindu og svoleiðis...  Man einmitt að einu sinni var vinkona mín að deita strák sem var duglegur að senda henni SMS nema hvað að það var alltaf fullt af stafsetningarvillum hjá honum ... stundum var illskiljanlegt það sem maðurinn var að reyna að koma til skila!!!  Skemmst frá því að segja að vinkona mín gat ómögulega hugsað sér að vera með honum vegna þessa ;)

Er að fara í læknaerindi á Norðfjörð á morgun... átti að fara á Akureyri til þess en svo vildi svo heppilega til að það er akkúrat staddur geislafræðingur á Sjúkrahúsinu á Nobbó þannig að ég slepp við ferðina á Akureyri :)  Fyrir þá sem ekki vita er ég að fara í sneiðmyndatöku því það vantar vinstri hluta heilahvelsins í mig....

Orð dagsins er hreppsómagi

08/05/2006

Þreyta.......................

Úff ég er svo þreytt að ég get varla haldið augunum opnum...........

Gat ekki sofnað í nótt... ástæðan var sú að ég var að telja mér trú um það að ég væri komin með einhverja yfirskilvitlega hæfileika.... ég hafði það svo sterklega á tilfinningunni að Ásta Kristín væri komin af stað í fæðingu eða eitthvað væri að hjá henni:S  Hún er ekki alveg komin á tíma þannig að ég hafði stórar áhyggjur af þessu ... Áður en hún sagði mér að hún væri ólétt hafði ég það svo sterklega á tilfinningunni að hún væri ólétt... sem reyndist svo rétt (þó hún hafi að sjálfsögðu ekki viðurkennt það þegar ég spurði :) )  Þetta var nú ekki til að bæta á áhyggjur mínar... enda mætti ég óendanlega þreytt í vinnu í morgun.... ég hef samt greinilega enga svona hæfileika sko... alltílagi með Ástu :) 

Átti rosa næs helgi ... fór til Oddnýjar og Sjonna í grill á laugardaginn í góða veðrinu :)  Grillið svíkur aldrei;)  Það var reyndar ekki þverfótað fyrir fólki, hjólastólum og barnavögnum þarna... Oddný bauð þarna hálfri sinni ætt og hálfri Sjonna þar sem hún var með samviskubit að skilja einhvern útundan ;)    Haha ég var einmitt spurð hvort ég hefði verið í giftingarveislu þarna því það var svo mikið af bílum fyrir utan :)

Ég er andlaus og orkulaus... þarf mjög að lita á mér augabrúnirnar en er engan vegin að nenna því... verð sennilega áfram andlits- og sviplaus...

Nafn dagsins er Dúfus

06/05/2006

Jahá.....

Allt er nú til :Þ

 

Bara fyrir þá sem hafa áhuga á að æfa sig;)

Mér drepleiðast föstudagskvöld!!!  Ég er eitthvað alveg að mygla úr leiðindum og sú grafalvarlega staða hefur komið upp að ég er að spá í að fara að sofa...  fyrir ykkur sem eruð ekki að átta ykkur á hlutunum er klukkan sko 22:21 í þessum töluðu orðum ..............

Í leiðinlegheitum mínum langar mig að gerast soldið bókmenntaleg og mæla með að þið festið kaup á kilju af bókinni Flugdrekahlauparinn en það mun bara vera ein af bestu bókum sem ég hef lesið!

Á morgun förum við mæðginin til Oddnýjar og Sjonna í grill sem verður væntanlega vikulegur viðburður í sumar... :)Þau munu hafa fest kaup á traustari stólum þar sem erfitt er að hafa hemil á fólki eins og mér;)

 

Orð dagsins er "Vandræðagepill"