30/06/2006
Cześć.............................
Já nú dámar mér kæru eskfirðingar nær og fjær...... ég sé mig knúna til að setja inn tilkynningu hér!!!
Í gærkvöldi gerðist sá merkilegi atburður að malbikað var hér í miðbænum!!! Nota bene þar sem steyptu hellurnar voru... en þær voru settar þar árið 400 fyrir Krist!!! :Þ
Valur - Fjarðabyggð á sunnudaginn og geri ég fastlega ráð fyrir að Fjarðabyggð rústi þessu ;) Erla mín þér er hér með sérstaklega boðið í heimsókn til að horfa á rústið ;) Og svona í leiðinni ætla ég að biðja þig að taka svartholið mitt í gegn (töskuna mína) :)
27 dagar :):):):):):):):)
best að haska sér í rúmið þar sem það eru "mánaðarmót" á morgun hjá mér :Þ
01:35 Permalink | Comments (14) | Email this
29/06/2006
Dzień dobry
Er orðin alveg fluent í pólsku og búin að læra mörg "hagnýt" orð :Þ
En nú dugir ekkert annað en að tala pólsku þar sem pólskumælandi eru komin í meirihluta hérna ;)
Hvernig er það eru allir að fara eitthvað um helgina?
Er annars eitthvað andlaus núna... eiginlega bara farin að bíða eftir Ítalíu... eða eigum við að segja að Ítalía sé farin að bíða eftir mér ;) Hef ákveðið að fasta þangað til eða í 28 daga :) Þar sem ég sá að mér gengur ekkert rosa vel að komast í bikiníið númer 8 sem ég pantaði mér fyrir ferðina :Þ
02:08 Permalink | Comments (7) | Email this
27/06/2006
Sit hér.........
ein og sauma í eiturskýi heima hjá mér... já eða kannski ekkert svo mikið að sauma þar sem ég er ekkert sérlega klár neitt í því :Þ
Varð vitni af panic of the century í dag... jamm allt að gerast í firðinum fagra .... held ég sé eitthvað ímyndunarveik... fann klórlykt þegar ég steig út úr bílnum þegar heim var komið í dag... búin að spurja marga en enginn virðist hafa fundið þetta... nema ég.... kannski er ég bara með svona gott lyktarskyn....:Þ
Skellti mér á kaffi kósý á laugardaginn með Dilju og Guðlaugu... ferlega næs að kíkja aðeins út með stelpunum ;) Verð þó að segja að það var heldur mikið af útlendingum þarna fyrir minn smekk... við íslendingarnir vorum að minnsta kosti í miklum minnihluta þarna... Píanóbarinn hvað segi ég nú bara!!!
Well nóg í bili
Over and out.......................
23:46 Permalink | Comments (0) | Email this
20/06/2006
Mér finnst ég.............
eiga skilið mikla vorkunn frá ykkur núna.....
Allavega er ég í bullandi sjálfsvorkunn!!!
Mér leiðist svo hryllilega mikið og er búið að leiðast svo síðustu daga... :,( Finnst ég bara eiga mjög bágt núna....
Ekki koma með einhver komment um að það eigi fullt af fólki miklu meira bágt en ég .... því ég veit að það er bara ekki satt sko ................... Því þegar ég er farin að hugsa um það að fara út í garð að slá eða dekra við blómin þá er eitthvað mikið að ....
Annars er gaman að sjá hvað mörg af ykkur eru með mig í favorites :)
Eeeeeeeeeennnnnnn það eru ansi margir sem ég sé að eru að koma inná bloggið mitt og kvitta ekki fyrir sig.... ég get nefnilega séð ansi mikið sko ;) Endilega kvittið .... miklu skemmtilegra en að vera að laumast :Þ
14:53 Permalink | Comments (16) | Email this
17/06/2006
Hahahhahahahah!!!!!
Þetta er nú soldið púkó ![]()
Vitlaus stelpa krýnd Mrs. World
hahahhahahaha... ekki vildi ég lenda í þessu.......
Verðið að kíkja á þetta http://www.youtube.com/watch?v=1TJ_UKt4QtQ
04:05 Permalink | Comments (3) | Email this
15/06/2006
Er annað hægt............
en að vera nokkuð ánægður með lífið þegar það er svona gott veður! Þó maður þurfi að hanga inni í vinnunni í því :Þ Þegar ég kom út í morgun klukkan rúmlega 8 til að fara í vinnuna mætti mér bara heitur blástur .............. jamm það var 17 stiga hiti!!!! Ekki amalegt að vakna við það þegar maður er á Íslandinu góða ;)
Síðasta helgi var bara róleg.... aldrei þessu vant hélt ég mig bara til hlés þennan sjómannadaginn og var bara í heimsóknafíling............... :) Sá líka þegar ég vaknaði á sunnudagsmorgninum að það hafði algjörlega borgað sig að hafa sig bara hæga :Þ Ferlega ljúft að þurfa ekki að liggja flatur í einhverja daga ;)
Ég er farin að hlakka soldið til að fara í sumarfrí en í gær var akkúrat mánuður í það :Þ Svo er það bara Ítalía eftir six weeks :) Hlakka alveg til sko;)
12:32 Permalink | Comments (8) | Email this
09/06/2006
Bara fyrir ykkur..........
sem eruð ekki í góða veðrinu á Eski;) 
01:22 Permalink | Comments (3) | Email this
07/06/2006
Ó mæ..................
ég hefði gefið af mér aðra löppina til að komast á tónleikana með Bubba.... nota hana hvort eð er ekkert.... ferðast um allt í bíl :Þ En ég gæti haldið alveg klukkustundar langa lofræðu um manninn en þið nennið sjálfsagt ekkert að hlusta á mig ;)
Fór á ball á laugardaginn með svörtum fötum.... komst að því eina ferðina enn að áfengi er böl og ég ætti að halda mig frá því í framtíðinni .... en maður lærir víst seint ;)
Var um það bil að fara að lýsa eftir Hlyn þar sem hann er búinn að vera í vinnu frá því klukkan 8 í morgun og núna er klukkan 23:20.... eeeeennnn hætti við þar sem hann var að koma inn úr dyrunum þessi elska færandi hendi með 7 kassa af bjór:) Mig sem var búið að langa svo hrikalega í bjór í allan dag... bara einn!!! En gleymdi að fara í ríkið.... þessi er reyndar eitthvað sérmerktur fyrir sjómannadaginn en ég ætla að taka forskot á sæluna eftir augnablik þar sem ég ætla að halda friðinn og strjúka kviðinn og vera edrú og fjölskylduvæn þessa sjómannadagshelgi :)
Ps . Vinsamleg tilmæli til þín kæri bróðir að taka ljótu myndirnar af mér frá ballinu og geyma þær einhversstaðar þar sem enginn sér en ekki á veraldarvefnum ;)
01:22 Permalink | Comments (7) | Email this
02/06/2006
Mikið gladdi....
15:40 Permalink | Comments (2) | Email this
Dúddamía sko..........
held ég sé haldið alvarlegum sjúkdómi.............................. finnst ég hafa heyrt því fleygt að hann heiti leti ... er þó ekki alveg viss.....................
Vona að fólk geti nú kommentað eitthvað áfram hjá mér þrátt fyrir tæknilega örðugleika síðustu daga......... það er verið að breyta þessu bloggi eitthvað ... ég nennti bara ekkert að lesa yfir hvað er verið að fara að gera... en ef ég á að fara að borga fyrir eitthvað þá flyt ég mig sko bara aftur !!! Alveg á hreinu!
Uppgötvaði í dag hvað það er gott að hafa Air conditioner í bíl:) Alveg nauðsynlegt í svona veðri eins og í dag.... annars hefði ég bráðnað:Þ
Hvernig er það ... ætla einhverjir á ball með svörtum fötum um helgina? heyrðist í veðurfréttunum að veðurguðirnir væru okkur austfirðingum sérlega hliðhollir næstu daga :) Semsagt Grill Grill Grill :Þ
Túdílú;)
01:36 Permalink | Comments (1) | Email this


