05/08/2006

Bueno sera

Ja ja  tad er vist malid a itliunni :) 

Ju eg er a lifi ... enntha... :P

Verd nu samt ad segja thad ad klosettin herna a Italiu eru MJOG spes!!!!  Jamm flest eru thau nefnilega svona hola i golfid og madur faer bara a tilfinninguna ad madur se blindfullur a leidinni a ball ad miga a dalnum :P

En vildi bara lata ykkur vita elskurnar minar ad vid erum her i rifandi stemmingu med italian stallions :P

25/07/2006

Hvernig er það ... ???

Jæja gott fólk......

Nú fer fríið að hefjast fyrir alvöru og Ítalíuferðin að verða að veruleika eftir langa bið :)

Stefnan er að leggja í hann klukkan 8 í fyrramálið til borgar óttans og fara svo í bítlabæjinn og gista þar :)  Ekki laust við að spenningurinn sé að taka völdin hér á bæ :Þ

Ég fékk gesti í síðustu viku og hef ég mér það til málsbóta fyrir að hafa ekki bloggað neitt af ráði ;)  En Erla, Ingi og Filippía komu og gistu hér í 2 nætur... og voru svo indæl og koma með rigninguna með sér frá borginni í leiðinni!!!

En sólin tók að skína um leið og þau yfirgáfu fjörðinn fagra :)

Aldrei að vita nema maður riti eina línu eða svo á Ítalíu ef maður kemst einhversstaðar í internetið... skilst þó að Ítalir séu ekki sérlega tæknivæddir :Þ 

Farin að klára að pakka ....

 

23/07/2006

Hahahahha!!!

Er hægt að fá fyndnari niðurstöðu!!!!!

 

QuizGalaxy!

22/07/2006

Nú eru .....

25 ár síðan þú fæddist kæri bróðir.... mér finnst eins og það hafi verið í gær þó ég hafi bara verið tæplega 3ja ára .... ég man að minnsta kosti vel eftir því þegar mamma kom með þig heim og ég vildi henda þér beint á haugana!!!! 

Með árunum hef ég þó lært að sætta mig við þig ;)  Þó það hafi kostað minni athygli handa mér :Þ 

Ýmislegt hefur gerst síðan og höfum við brasað margt saman :)  Þó þú hafir nú séð alfarið um að kveikja í nokkrum buxum og gert heiðarlega tilraun til að brenna hús foreldranna til grunna ;) 

Ég hef líka ákveðið að fyrirgefa þér loksins fyrir að brenna af uppáhaldsbangsanum mínum lappirnar... en eftir nokkurra ára umhugsun hef ég ákveðið að það sé best ;)  Ég hefði þó sennilega ekki gert það ef amma hefði ekki getað prjónað á hann nýjar lappir og sett hann í smekkbuxur svo ekki sæjist að lappirnar væru af annarri gerð ;) 

Ég man líka vel þegar þér var skutlað heim af fyrsta fylleríinu!!!!!  Þegar ég þurfti að drösla þér inn úr garðinum heima og koma þér í rúmið;)  Ég lét þig þó þrífa upp eftir þig ýmislegt vafasamt þó húsið angaði af miður skemmtilegri lykt :Þ

Súrt og sætt hefur þetta verið en við höfum þó alltaf lent á fótunum:) 

Mest er ég þó hissa á að hvað þú hefur komið merkilega heill út úr okkar stormasama systkinasambandi, þó það sé allt annað en stormasamt í dag :)

Elsku Bjössi minn til hamingju með afmælið :)

17/07/2006

Ég á doldið....

erfitt með að átta mig á því að ég sé ekki að fara að vinna á morgun... er ekki vön að vera heima hjá mér í fríi... spurning hvort maður verði ekki bara búinn að gleyma því og muni svo bara rjúka upp í fyrramálið og bruna í vinnuna :Þ  Það væri nú ekki ólíkt mér þar sem ég get verið ansi rugluð á morgnana :Þ

 Helgin hefur verið ljúf:)  Fékk gesti og líka næturgest :)  Alltaf gaman að fá gesti sko :Þ   

Í kvöld gerðist ég svo túristi á Eskifirði... ákvað að fara út í sveit og skoða mig aðeins um með fríðu föruneyti :Þ  Komst reyndar að því í leiðinni að bíllinn minn er ekki sérstaklega gerður fyrir "off road" akstur ;)  Við ætluðum að fara á Langasand en fundum hann svo ekki.. reyndar gæti verið að hann hafi verið aðeins lengra útá sveit en við komumst á kagganum mínum:Þ  En við allavega skoðuðum okkur vel um og fórum svo í silfurbergsnámuna :)  Hef ekki komið þar síðan ég var sennilega 16 ára eða jafnvel yngri!!!  Ótrúlega gaman að fara að skoða svona hluti aftur:)

Gaman að segja frá því að það eru 9 dagar í Ítalíu :):):):):):)

 

Að lokum vil ég óska henni Tinnu frænku minni til hamingju með afmælið í dag :)

15/07/2006

Ég er.......................................................

komin í frí :) víví:)  12 dagar í Ítalíu og farmiðarnir komnir :Þ 

P.s ammælispartý eru so last year!!!  Svo á maður líka á hættu að verða þunnur eftir svoleiðis havarí :Þ

13/07/2006

Hér er...

Photobucket - Video and Image Hosting

 

flaskan góða Bella !!!  Þú verður að taka eina fyrir mig heim ;)

Verð að þjóta.... RockStar úrslitin eru að byrja....

P.s 2 dagar í frí og 14 dagar í Ítalíu :Þ

10/07/2006

GleðiSleði :Þ .........................

Jamm gott fólk... ég er mjög mikill gleðisleði í kveld :)  Ég nefnilega varð fyrir því óláni á laugardagsnóttina að týna veskinu mínu ... alveg merkilegt hvað maður er vængbrotinn og getur ekki gert neitt veskislaus... en núna rétt áðan var verið að hringja í mig og veskið hafði semsagt fundist í Valhöll :) :) :)  Ég er að vísu búin að loka öllum kortunum þannig að ég get ekkert notað þau fyrr en ég fæ ný en ég er hinsvegar ofsa ánægð með að fá veskið mitt aftur :)

Verð nú samt að hnussa smá yfir því að þegar ég var að panta mér ný kort í dag kom upp athugasemd að myndin á kortinu mínu væri of gömul og ég gæti einungis fengið bráðabyrðakort :Þ  Þeim sem hafa séð myndina á kortunum mínum kemur að sjáfsögðu ekki á óvart að ég vilji helst ekki skipta um mynd ;)  Enda er hún orðin antík ;)  En ég mun hafa verið um 17 vetra þegar hún var tekin:Þ

Í dag mun vera 10. júlí :):)  Sem þýðir bara eitt ...., 16 dagar í Ítalíu (ég virðist nú eitthvað hafa fipast í reikningnum í síðustu færslu )  oooooooggggg einungis 4 dagar í frí hjá mér ;)

Svo er bara komið að öðrum þætti í RockStar annaðkvöld.... hlakka til að sjá hann og mun sko pottþétt ekki missa af honum live!!!  Eins gott að þeir sýni þessa þætti á Ítalíu ;)

 

Er einhverjum sem langar að bjóða mér til borgar óttans um helgina??  Hef nefnilega fengið boð í afmæli ... sem mig langar alveg sérlega að mæta í ... en ef enginn vill bjóða mér þá verð ég að taka litla bróður á orðinu um að halda glimmerpartí handa mér Söru og Tinnu á Ítalíu ;)

 

Hættu svo að nöldra Bella!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

05/07/2006

Smá fyrirveltingur.....

má segja það??

Allavega er ég þá að velta fyrir mér hvort fólk ætli að vaka eftir RockStar í kveld?

Mig langar soldið að sjá þetta.... en nenni því eitthvað ekkert ein... er heldur ekki búin að koma mér í það að hringja og tjekka á liðinu :Þ

9 dagar í frí og 25 dagar í Ítalíu :):):)  Fjúff hvað ég hlakka til ;)