29/09/2006
Þá er ....
förinni heitið til Akureyar í sumarbústað :) Það verður nú sennilega frekar ljúft að hanga bara þar og hafa það næs og skella sér í pottinn og kveikja upp í arninum :)
Mig langar í eitthvað ... hvað nákvæmlega veit ég ekki ... samt ekki eitthvað að borða... kannski bara eitthvað handa mér sjálfri... einhverjar tillögur ??
Vonandi munuð þið hafa það næs um helgina eins og ég ;)
14:01 Permalink | Comments (2) | Email this
27/09/2006
Já....
gott fólk.................. mér er ekki hlátur í huga í dag ;( áfram heldur neikvæðnisbloggið ... ég er semsagt svona nánast orðin einstæð móðir... again.... Hlynur mun vera á leið til útlanda á sjó og verður í langan tíma í burtu í einu... að vísu mánuð fyrst og svo mánuð heima... en svo verður hann tvo mánuði á sjó og tvo mánuði heima... semsagt... með öðrum orðum verð ég EIN á jólunum... eða svona þannig .. ég og Ísar verðum EIN ;(
Ekki beint óskastaðan en þetta vill hann prófa... og ekki getur maður neitað honum um það þessari elsku ;(
Fór á barinn um helgina ... sem verður nú að teljast til tíðinda :Þ Tók meira að segja lagið í karókí :Þ síðast þegar ég gerði það var með Oddnýju á Toppnum sáluga og vorum við klappaðar niður :) Hihi það hefur sosum aldrei verið neitt leyndarmál að ég kann EKKI að syngja ;)
Bella mín að koma austur um helgina... þarf nottlega að velja sér helgi þegar ég verð á Akureyri í sumarbústað :) En ég mun að sjálfsögðu hefna mín og ekki hitta hana næst þegar ég á leið í borgina ;)
En segjum þetta gott í bili...
Adios :Þ
16:03 Permalink | Comments (3) | Email this
24/09/2006
Þetta...
er nú allt að koma....
aldrei að vita nema maður hendi inn færslu á næstunni... :)
00:36 Permalink | Comments (6) | Email this
07/09/2006
Ég er...........
einstaklega geðvond þessa dagana...
Veit ekki hvað er verið að röfla um að ég eigi að blogga... held þið viljið ekkert að ég sé að blogga neitt þegar ég er í svona skapi takk!!
Það er bara eitthvað allt ómögulegt!
Getur einhver létt skapið hjá mér... ef svo er þá get ég sagt að sú manneskja sé gríðarlega hæfileikarík!!
16:18 Permalink | Comments (10) | Email this
30/08/2006
Nýju....
22:43 Permalink | Comments (18) | Email this
29/08/2006
Hvað er....
þetta neyðarlegt!!!!
http://us.video.aol.com/video.index.adp?mode=1&pmmsid=1701532
13:40 Permalink | Comments (5) | Email this
24/08/2006
Lekandi.......................................
nei ... ekki vegna frétta af að lekandi sé orðin landlægur andskoti... hvernig ætli hann lýsi sér annars... langt síðan ég var í kynfræðlsu :þ
Er bara búin að vera í lekandi fýlu í dag!!! Held ég hafi ekki farið í svona fýlu síðan ég var 13!!! Svo er ég bara með allt á hornum mér í þokkabót!!!
Er að vinna í þessu töskumáli .. andskoti er mikið mál að fá þetta bætt... maður þarf að lista upp alla hluti sem voru í töskunni og finna út hvað þeir kosta!!! Hver man eiginlega hvað var í töskunni sinni nema þá þessa allra helstu hluti sem maður saknar og notar dagsdaglega ;( Töskunni minni var sennilega stolið... hver í ósköpunum hefur áhuga á dótinu mínu... mér er bara spurn... ég meina skítugar brækur og gnístigómur... ekki einsog einhver fari að troða því uppí sig!!!
Er á leið í borg óttans á föstudag... man reyndar ekki alveg hvenær ég á flug... :þ við mæðginin ætlum bara að hafa það næs í borginni þar til á sunnudag...
Jæja nú er ég búin að fá útrás ... búin að hella úr skálum pirrings míns og fýlu :) Aumingja þið að þurfa að hlusta (lesa) á mig stundum ;)
00:00 Permalink | Comments (7) | Email this
17/08/2006
*****GRÁT*****
*snökt* *snökt*
Á morgun er elskuleg systir mín að fara aftur suður! ;( Hef trú á því að það verði viðbrigði að hafa hana ekki á heimilinu... en ég bara verð dugleg að heimsækja systkini mín suður í vetur vonandi :)
Gaman að segja frá því að ég er ekki búin að greiða á mér hárið í rúma viku... allt sökum þess að taskan mín týndist og fannst og týndist... maður tímir ekkert að vera að fjárfesta í öllu nýju því þegar taskan kemur, þá á maður tvennt af öllu sem dugir manni heilan mannsaldur :þ Spurning hvort þurfi ekki bara að klippa mig stutt ... sennilega ekkert sem ræður við þennan flóka :þ
Ég var soldið sjokkeruð í nótt þegar Magni var meðal 3ja neðstu!!!! Átti engan veginn skilið að vera þar!!! En hinsvegar átti Storm að vera þar... Hvað er annars eiginlega með hann Lucas... hann er bara eins og málaður vatnsgreiddur skunkur!!!!
Ég lagði inn pöntun á Sunnudaginn uppá anorexiu... var fyrst að spá í bulimiu en ákvað svo að anorexia skyldi það verða... það bólar hinsvegar ekkert á henni þannig að ég legg hér með inn skriflega pöntun!!! bÍvar ert þú ekki með einhver sambönd ;)
Agla - eins og úfin hæna :þ
22:42 Permalink | Comments (3) | Email this
16/08/2006
Bið ...........................
endalaus bið........... mér finnst ég alltaf vera að bíða eftir einhverju!!
Gaman að segja frá því að ég er ennþá að bíða eftir töskunni minni!!!! Greinilega einhver lesið bloggið mitt og ákveðið að stela henni bara og haldið að það væri einhver spennandi varningur í henni ;)
Taskan er reyndar bara týnd aftur!!! stelpugreyið á flugstöðinni eyddi meirihlutanum af gærdeginum í að hringja og leita af töskunni... svo talaði ég við hana í morgun og þá ætlaði hún að hringja á Kárahnjúka sem eru víst síðasta hálmstráið!! Sérdeilis áhugavert!!!!
Horfðuði á Rockstar í nótt? Ég horfði sko!!! Jesús minn og allir hans lærisveinar!!! Ef þið horfðuð ekki þá verðið þið að fara inn á www.rockstar.msn.com og kíkja á Storm Large!!!!!!!!!!!!!!! Þetta var alveg skelfilegt hjá henni!! Ég verð hreinlega að kaupa mér íslenska orðabók til að finna nógu góð lýsingarorð yfir hörmungina sem var á meðan hún var á sviðinu blessuð dúfan... Og sviðsframkoman ... ég hreinlega þurfti bara að loka augunum!!! En að venju stóð Magni sig vel ... mætti nú samt alveg fara að taka smá áhættu og sýna einhverja svala takta....
En hvað er með þessa mótmælendur hérna???? White trash pakk sem lifir pottþétt á féló í sínu landi!!! Á sko ekki að hleypa þessu pakki inní landið!!! Í augnablikinu eru einhverjir mótmælendur búnir að planta sér í krana þarna á svæðinu!!! Ég mundi sko bara hrista kranann duglega og ath hvort þeir detta ekki niður!! ;) Ef þeir mundu voga sér eitthvað nálægt mér þá yrðu þeir slétt lamdir ... FAST!!! Jafnvel að maður fjárfesti í barefli og leiti þá uppi ;) Eins gott fyrir þá að vera með aðsetur á túninu á Kollaleiru .... annars væri pottþétt einhver sniðugur búinn að fara og brenna niður tjöldin þeirra :þ
Agla með allt á hornum sér ;)
12:49 Permalink | Comments (7) | Email this
12/08/2006
Komin heim.....
í heiðardalinn :)
Eftir yndislega æðislega frábærlega gott frí á Ítalíu :):):) Hefði reyndar alveg getað hugsað mér að vera lengur sko :Þ
Komst þónokkuð klakklaust frá þessu öllu nema að taskan mín týndist í fluginu heim.... getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var geðvond þegar það kom í ljós :Þ
Áðan fékk ég símtal frá tapað/fundið á Leifsstöð.... jú taskan mín var komin í leitirnar.... en hún var föst í tollinum.... nú??? Hvað í andskotanum var í töskunni sem gerði það að verkum?? Ég var sko ekki með neitt misjafnt í henni nema kannski skítugar nærbuxur og tannburstann minn ;)
Jú það eru handjárn í töskunni og þú verður að hringja í tollinn og tala við þá.... mín hringir í tollinn.... tollvörðurinn spyr mig pollrólegur hvað ég sé að gera með handjárn í töskunni .... jesús ég hef sjaldan skammast mín jafn mikið!!! Held að tollarinn hafi heyrt mig roðna í gegnum símann.... trúði mér pottþétt ekki þegar ég sagði að þetta væru leikfangahandjárn sem hefðu verið keypt handa syni mínum!!!!! En nei þá voru þetta bara the real thing og það þurfti að gera þau upptæk:Þ Jeminn ég er ennþá að ná roðanum úr andlitinu ;)
00:32 Permalink | Comments (7) | Email this


