17/01/2007
Hmmmmmmmmmmm..................
einhver bloggleti í gangi í liðinu...... en það lagast allt saman :)
Er loksins að ná mér almennilega eftir veikindin um jólin og áramótin!!! Ó já ég semsagt lá frá þorláksmessu og þar til 2 jan... og er ennþá að ná kvefinu úr mér! Drasl............!!!!
Allt á fullu í þorrablótsundirbúningi... en herlegheitin verða á laugardaginn :) Verður spennó að sjá hvernig þetta verður allt saman.... furða mig samt á því hvernig einstæðar mæður geta verið í þessari blessuðu nefnd... það er að segja ef þær hafa ekki einhvern sem getur komið og passað fyrir þær hvenær sem er.. fór á fund í gær og gærkvöldi og fór svo heim um tíuleitið og þá átti eymingjas einkaprinsinn eftir að læra og var svo gjörsamlega búinn á því þegar hann fór að sofa..... svo ég tali nú ekki um það hvernig hann var í morgun greyið... en þetta reddast allt ....
Annars er allt í rólegheitum hérna á austfjörðunum ...
15:29 Permalink | Comments (1) | Email this
23/12/2006
Auglýsi eftir....
sterkum og góðum verkjatöflum! Get borgað vel fyrir ;)
Úff er semsagt veik... með hálsbólgu og hausverk og almenna vanlíðan ;(
Ég gleymdi að póstsetja jólakortin þetta árið... þannig að Gleðileg jól öllsaman og farsælt komandi ár :)
Fyrir þá sem vilja kíkja á myndir frá brúðkaupinu okkar eru tveir linkar hér til hliðar með nokkrum myndum en linkarnir heita flickr atla frænda og flickr eiginmannsins :)
Farin að ná mér í hálsbólgutöbblur og verkjatöbblur....
22:20 Permalink | Comments (5) | Email this
22/12/2006
Sjaldséðir
hvítir hrafnar :)
Dáldið langt síðan ég hef látið sjá mig hér ;)
Soldið margt sem hefur gerst síðan... má þar helst nefna að ég er orðin FRÚ :P
Svo er eiginmaðurinn farinn á sjó aftur og verður að heiman um jólin greyið!
Hef sosum ekkert tíma til að blogga meira í augnablikinu en á von á að gera það í kveld eða á morgun :)
12:43 Permalink | Comments (2) | Email this
14/11/2006
Ég er orðin ....
amma ... já gott fólk.... já eða þannig sko... kisan mín var að eignast kettlinga :) Hrikalega sætir þannig að ef einhvern langar í kettling eftir ca 2 mánuði þá getiði haft samband við mig ;)
Í gær ákváðum við skötuhjúin að skella okkur til Boston á föstudaginn í næstu viku :) Hlakka alveg rosalega til að fara :) Örugglega alveg hrikalega jólalegt þar :p
Annars er allt við það sama hér austur á fjörðum... er ekki alveg nógu ánægð með þennan snjó sem hefur ákveðið að setjast að hér snemma í ár ;( En maður kemst kannski bara á skíði í staðinn :)
11:54 Permalink | Comments (16) | Email this
02/11/2006
Þreytt....
á að hlusta á hvað aðrir hafa alltaf að segja um stöðu manns í lífinu og hvernig manni á að líða ...
Vil vinsamlega benda fólki á að segja ekki við mig t.d " hvað hann verður nú heima í mánuð er það ekki æði " ... mér finnst algjörlega óþolandi hvað allir hafa rosalega sterka skoðun á hvað Hlynur verður lengi heima og hvað það verði æðislegt ... og það muni ekkert þó hann sé þarna úti því hann sé hvortsemer á sjó... vil endilega benda á að það er enginn ykkar í nákvæmlega sömu stöðu og ég! Ég er þar fyrir utan alveg vön því að hafa Hlyn heima í mánuð og meiri tíma.
Flestir eiga ekki sjómenn sem eiginmenn heldur hafa mennina sína heima á hverjum degi! Svo er líka margt annað að gerast í lífi mínu sem flestir hafa kannski ekki hugmynd um eins og gengur og gerist hjá öllum! Þannig að ekki reyna að þykjast setja ykkur í mín spor og segja mér hvað þetta er jákvætt... ég er sú eina sem er í nákvæmlega þessari stöðu og er fullfær um að meta tilfinningar mínar gagnvart þessu!
Ein spurning... myndir þú vilja vera ein/einn á jólunum? Nei maður spyr sig?
Ég bara varð að koma þessu frá mér ... er orðin alveg rosalega þreytt á að hlusta alltaf á það sama frá mörgum einstaklingum!
Og nei með þessari færslu var ég ekki að segja að ég væri eitthvað ósátt við þetta... var bara að segja að ég er ekki búin að gera upp hug minn gagnvart þessu og vil fá að ákveða það sjálf hvernig hann verður þó að alltaf sé gott að fá önnur álit og svoleiðis!
11:52 Permalink | Comments (6) | Email this
23/10/2006
Krúttlegt...........
Mamma hvað er að? Ertu svona leið útaf pabba? - Jájá þá skil ég þig alveg ....
það er ekki hægt að segja annað en að sonur minn hugsi vel um mömmu sína :)
Fannst þetta ofurkrúttlegt ;)
00:59 Permalink | Comments (5) | Email this
17/10/2006
Á morgun....
verð ég orðin fjögurra barna móðir... :Þ Ekki skilja mig þannig að ég gangi með þríbura sem ég muni eignast á morgun samt ;)
Er semsagt að fara að flytja heim til pabba og Önnu í viku ... og hafa hemil á þessu krakkagemlingum sem þar búa! Þeir sem þekkja mig vita að það verður heragi á heimilinu allan tímann :) Ef einhver vogar sér að hlýða mér ekki þá verður hann dreginn á hárinu í miðbæinn og rassskelltur á bert rassgatið ;) Svo Birkir minn passaðu þig bara :Þ
Nei nei ég hugsa annars að þetta verði voða fínt :) Fjörugt sennilega :Þ En ég hef nú bara gott af því þar sem mér leiðast rólegheit ;)
Ballið var ágætt ... hún Íris frænka mín var svo elskuleg að bíða eftir mér svo ég kæmist með :) Ég er búin að finna út hvernig maður á að verða ekki þunnur daginn eftir :) Gleymdu veskinu þínu heima ... hehe eins og ég gerði ... þurfti að fá lánað á ball :Þ Mjög skemmtilegt ;) Þar sem mér er mjög illa við að fá lánað þá drakk ég bara einn bjór á ballinu þar sem hún Jóhanna mín var svo elskuleg að færa mér :)
Verð samt að segja að mér fannst heldur mikil ölvun þarna og mikið af ungum krökkum... en kannski er ég bara orðin svona gömul :Þ Gat einmitt ekki haldið augunum opnum þegar ég var á leiðinni heim... orðin svo svakalega þreytt og gömul ÖSS !!!!
12:38 Permalink | Comments (8) | Email this
09/10/2006
Haldin...
á vit ævintýranna í borg óttans og mun halda til þar næstu tvo dagana ...
góða skemmtun á meðan ;)
18:17 Permalink | Comments (3) | Email this
08/10/2006
ég var...
spurð að skemmtilegri spurningu í gær :Þ
Ég og sonurinn vorum að borða ... svo býð ég honum meira og hann var sko meira en til í það... svo þegar hann setur diskinn í uppþvottavélina þá spyr hann mig af hverju ég hafi borðað svona lítið.. ég segi honum að ég hafi bara ekki lyst á meiru.... þá spyr hann mig varfærnislega hvort ég sé með anorexiu... haha þessi elska :)
Annars lenti ég í hræðilegu í fyrradag.. puntatakkinn datt af tölvunni minni.... skelfilegt fyrir punktafíkil eins og mig :Þ En ég get notast við lítið "tippi" sem stendur þarna uppúr :Þ
23:00 Permalink | Comments (3) | Email this
04/10/2006
Nú er bara ....
að bíta á jaxlinn og vona að allt gangi vel :Þ
Hlynur farinn í burtu næsta mánuðinn og ég alein ;( Ekki alveg nógu hress með þetta sko... en ef það er einhver handlaginn sem er þarna úti sem vantar samastað í mánuð með möguleika á framlengingu þá er ég til í að athuga málið... má geta gert fleira en vera bara handlaginn :Þ
Akureyris var næs... aldrei séð svona rosalega flottan bústað!! Pottþétt að maður á eftir að fara þangað aftur :)
Mig langar til ameríku... þarf að komast í nokkrar búðir :Þ Einhver til í að koma með ;)
17:04 Permalink | Comments (4) | Email this

