13/04/2007
Páskarnir búnir..
og alvaran tekin við á ný:)
Hafði það svakalega næs um páskana og fékk fullt af gestum :) Fórum að sjálfsögðu í fermingarveislu til hans Péturs Arons frænda míns og fengum það hrikalega góðan mat... eins og reyndar maður fær alltaf þegar maður fer til Atla og Beu ;)
Húsið mitt er að komast í fínt horf aftur eftir breytingarnar en þó erum við að setja nýja bílskúrshurð... en það truflar mig vonandi ekkert þar sem Hlynur sér um bílskúrinn :P Erum ótrúlega ánægð með breytingarnar og þyrfti eiginlega að skella myndum inn hérna til að monta mig við þá sem sjá sér ekki fært að koma og skoða :P
Eins og stendur erum við hjónin flutt í útbæinn til pabba til að passa fóstursystur mínar sem eru reyndar fósturdætur okkar þessa dagana :P Verð að koma því á framfæri að unglingar eru skrýtið fyrirbæri... man ekki eftir að ég hafi verið svona...
Nú styttist í að Hlynur fari aftur á sjó... mér finnst sko ekki eins og það séu að verða tveir mánuðir síðan hann kom í land ;(
Langar að óska elsku elsku elsku elsku litla bróður mínum honum Birki innilega til hamingju með 19 ára afmælið sitt :)
Finnst nú ekki langt síðan ég var 19... og þá átti ég barn... en mér finnst Birkir ekkert svona fullorðinn eins og ég var þá :P En síðan eru liðin 10 ár... Jeminnnnnnnnn!!!!
17:23 Permalink | Comments (5) | Email this
14/03/2007
Kominn tími á ....
nýja færslu ???
Nei er það nokkuð ....??
Allt á kafi í skít heima hjá mér þessa dagana... búið að rífa niður vegg... jæja að hluta allavega og ekki nóg með það heldur vildi Hlynur endilega skipta um efni í loftinu í leiðinni þar sem þetta sem er fyrir ... jahh fer eitthvað í taugarnar á honum... sem þýðir að það þarf að mála líka... og þar sem ég er afar óþolinmóð manneskja þá fer þetta ekki vel í taugarnar á mér.. :P
Ég vill nebblega að þetta gerist svona... Ég fer í vinnuna að morgni... þegar ég kem heim er Hlynur búinn að taka niður vegginn... mála veggina og skipta um loftefni... en þar sem þetta er allt óskhyggja og draumórar þá eru taugarnar mjög þandar þessa dagana :P Mig langaði til að skipta um eldhúsinnréttingu í leiðinni en sé að ég mun ekki hafa taugar í það heldur... þannig að það fer á hold í bili :)
Annars þykir mér ástæða til að koma með smá tilkynningu hér inn fyrst ég er farin að skrifa á annað borð :P
Ég er ekki að flytja eitt né neitt... ég er bara að skipta um vinnu... og húsið mitt er ekki á sölu.... :)
16:50 Permalink | Comments (3) | Email this
22/02/2007
Jæja börnin...
góð :)
Nú er alveg að koma helgi :) Á morgun mun vera langþráður föstudagur :)
Nú er maður orðinn svo gamall að maður er orðinn spenntur að fara að þrífa og elda um helgina :P Hversu sorglegt er það nú eiginlega orðið... ?? Nei annars ekki segja mér það ;)
Loksins eru sumarfrísplönin að verða komin :) En þetta sumarið er planið að fara með föður mínum og Önnu og börnunum hennar og hans til Flórída... og svo fær eiginmaður minn að fljóta með ásamt barnabarninu ;)
Mér lángar í eitthvað ... einhverjar tillögur um eitthvað gott?
16:08 Permalink | Comments (8) | Email this
21/02/2007
Eitthvað varð nú....
lítið úr deginum í gær hjá okkur hjónakornunum þar sem hann komst ekki á leiðarenda fyrr en um níu leytið í gærkveldi ;( En við notuðum tímann vel og ég er ekkert viss um að ég hleypi honum aftur útúr húsi :)
Annars kom hann bara með eitthvað skítaveður með sér frá afríku... búið að vera autt og fínn hiti úti allan tímann meðan hann var á sjó og um leið og hann kemur heim þá fer að snjóa og kemur eitthvað leiðindaveður með !!!
Hvað eru allir að væla yfir að Britney sé að fara yfirum! Mér finnst hún nú bara töffari að gera það sem hana langar (svo lengi sem hún skaðar ekki börnin sín)... og sé bara ekkert að því að hún raki af sér hárið! Finnst hún bara töffari.. og mér fannst hún aldrei töffari áður :)
14:58 Permalink | Comments (5) | Email this
20/02/2007
Þá er dagurinn....
loksins runninn upp! Ég er búin að bíða eftir þessum degi í 2 mánuði :) Hann Hlynur minn er að koma heim í dag :)
Vil nota tækifærið fyrst ég nennti að blogga og óska honum til hamingju með 32 ára afmælið :) Ábyggilega erfitt að verða svona gamall ... en hvað veit ég sosum um það... ekki nema 28 sjálf :P
Annars er ég andlaus... vill bara að klukkan verði 17:00 því þá get ég hitt manninn minn! Andinn mun sjálfsagt koma yfir mig aftur þegar ég er búin að hitta hann aðeins ;)
11:24 Permalink | Comments (3) | Email this
14/02/2007
Skeytið ....
Á ég að trúa því að ég hafi gleymt að segja ykkur frá skeytinu góða!
Þannig er nefnilega mál með vexti að fyrir giftinguna kíkti ég í heimsókn til Bellu... og við vorum mikið að spá í hvernig hún gæti nú hrekkt Hlynza greyið aðeins! Skemmst er frá því að segja að okkur þótti afar viðeigandi að hún sendi mér skeyti á brúðkaupsdaginn... samúðarskeyti það er að segja :p
Nema hvað að svo rennur dagurinn upp og við bíðum spenntar eftir að skeytið komi... og ekki kemur það en á mánudeginum bíður það eftir okkur :)
Ég ríf umslagið upp ofsaspennt og læt Hlyn hafa skeytið ... og bíð eftir viðbrögðunum... en engin viðbrögð komu þannig að ég fór nú að kíkja á málið.... jú þetta var nú bara heillaskeyti þannig að það er ekkert skrýtið þó hann hafi ekkert sýnt nein sérstök viðbrögð... nema ég hringi í Bellu og fer að spurja hana útí þetta... skít á hana að hún hafi svo ekkert þorað að senda samúðarskeytið því hún vissi að Hlynur mundi hefna sín margfalt :) Jú Bella hafði sko valið samúðarskeyti! ... við fórum yfir þetta fram og tilbaka og komumst að þeirri niðurstöðu að manneskjan sem tók niður skeytadótið hafi breytt þessu í heillaskeyti og haldið að þetta hafi bara verið villa hjá Bellu greyinu að velja samúðarskeyti!
Hahaha Bella greyið búin að velja rosa drungalega mynd á samúðarskeytið og allt og svo kemur bara einhver voða jolly blómamynd í staðinn :P
Annars er ég komin heim aftur eftir að hafa verið að passa ótemjurnar fóstursystur mínar í nokkra daga :) Hef trú á að þær séu að bugast af söknuði núna þegar ég er farin ;) Gps tækið virkaði hinsvegar ekki sem skildi á þær :P
6 dagar......................:)
17:43 Permalink | Comments (8) | Email this
07/02/2007
Sorglegt.........;(
en satt þá kom ég skólaus til baka úr borginni... hver hefði trúað því og ég sem var búin að fá leyfi frá mínum elskulega eiginmanni til að fara í Kolaportið og kaupa mér skópar... hann stökk nottlega til þessi elska þegar hann sá síðustu færslu hjá mér og tilkynnti mér að ég mætti alveg fara í Kolaportið og redda þessum fótaskjálfta :p
Eeeeeeeennnnnnn ég keypti mér hinsvegar afar fallega tösku í Reykjavíkinni.... þannig að ég kom ekki alveg tómhent heim sko :)
Frá og með deginum í dag ætla ég að gerast unglingamamma... í tæpa viku... passa þessa skrattakolla fóstursystur mínar... ég mun að sjálfsögðu setja gps tæki á ökklana á þeim .. er búin að verða mér úti um svona eins og þið sjáið í bíómyndunum sko :)
Nú eru bara 13 dagar í að elskulegur eiginmaður minn komi heim aftur.... get samt alveg sagt ykkur að maður verður nett skrítinn í hausnum að vera svona lengi í burtu frá honum sko... ætla ekkert að skýra það neitt nánar :p
16:08 Permalink | Comments (13) | Email this
01/02/2007
Alveg að koma....
föstudagur... langt síðan ég hef hlakkað svona til helgarinnar!
Er nottlega að fara í borg óttans... og þar mun ég eta á mig gat ! Fara á alla helstu veitingastaði sem á vegi mínum verða!
Hlakka líka til að kíkja aðeins í nokkrar búðir... alveg orðið frekar langt síðan ég fjárfesti mér í skóm... enda er farið að bera á frávharfseinkennum hjá mér! En þau lýsa sér þannig að ég fæ kæki og kippi í lappirnar þegar ég reyni að komast í gömlu skóna :p
17:02 Permalink | Comments (1) | Email this
24/01/2007
Wassup ....
Hihi var ég ekki ótrúlega unglingsleg með þessa fyrirsögn :p
Ennþá vatnslaus... hvað er eiginlega málið! Verst að ég skuli ekki vera handlagin sjálf og geta lagað þetta bara :)
Finnst ykkur ekki soldið verið að neyða ykkur til að nota þetta myspace drasl? Mér finnst það soldið... ef maður ætlar að kommenta eða skoða hjá einhverjum þá þarf maður að signa sig inn og alles... svo finnst mér síðurnar ljótar og leiðinlegar... svei mér þá ef ekki er bara verið að brjóta á mannréttindum mínum þarna :p Ætli maður endi síðan ekki með eina slíka síðu ;)
Jesús pétur í allan vetur sko! Það er svo hlýtt að við þurfum að opna út í vinnunni til að lofta aðeins um hérna ! Vil minna á að það er janúar... þegar ég keyrði í vinnuna í morgun var 10 stiga hiti! Spurning um að fara að setja niður blóm ef að þetta heldur svona áfram....
16:27 Permalink | Comments (8) | Email this
22/01/2007
Blótið........
búið.......
Vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég :) Skemmti mér þó ekki eins vel daginn eftir ;( Fékk heiftarlega ælupest.... og að æla er eitt af því ógeðslegasta sem ég geri... ekki tók nú betra við um kvöldið þar sem einkasonurinn fékk líka pestina !!! Og já ekki nóg með það heldur varð vatnslaust hjá mér!
Hvers á ég að gjalda! Það er ennþá vatnslaust hjá mér! Maður þarf sko eiginmanninn á svona stundum!
Eru ekki einhverjir sem tóku myndir á blótinu sem vilja deila þeim með okkur hinum ;) Ég tók reyndar blótið upp á vídjó en það er ekkert jafn skemmtó!
Núna er maður bara farinn að telja niður dagana í bæjarreisuna sem verður haldið í þann 2.feb í góðra vina hópi :)
23:44 Permalink | Comments (4) | Email this

