« Ég held ég sé .... | HomePage | Aldrei hefði ég... »

24/12/2007

Jólin ......

eru að koma....

og mér finnst eins og þau séu nýbúin....

held ég komist ekki í jólafílinginn samt fyrr en ég finn rjúpnalyktina á eftir!  (liggur við að maður slefi þegar að maður hugsar um rjúpurnar )

annars er allt orðið voða jóló núna... snjórinn lét sjá sig í morgun... vonandi að hann nái nú að haldast yfir jólin!  

 

allt orðið voða skreytt og fínt ... ég reyndar gerði eitt nýtt þessi jólin sem ég hef ekki gert áður... ég keypti mér ofsa fallega plöntu... hún var bara svo fín og sæt að ég gat ekki sleppt henni ... hún heitir Audrey... eða Auður á íslenskunni... en við Auður tökum bara einn dag í einu ... mér hefur alltaf reynst frekar erfitt að halda lífinu í svona dóti... er ekki með græna fingur... en þessi deyr sko eftir jól... þannig að ég vonast til að geta haldið henni á lífi þangað til ... eins og ég segi ... einn dagur í einu :p

 

gleðileg jól allir :) 

Comments

Ég þarf að koma og kíkja á Audrey fljótlega, ég á einmitt svona bonsai tré.. hún heitir Þrúða

Posted by: bivar | 24/12/2007

Hahahah hvernig gengur að halda lífinu í Þrúðu? Er þetta í höfuðið á frænku þinni ;)

Posted by: Agla | 24/12/2007

Gleðileg jól elsku Agla mín! Þú ert sennilega að opna
pakka núna, en ég bara bíð og bíð eftir að jólin komi.
Það gengur ágætlega og nóakomfektið frá þér styttir
biðina (hrikalega er það gott!!!).

Fín nöfnin á plöntunum hjá ykkur Bjössa!
Við gerðum það þegar við fengum fiska fyrst að
skíra þá... hhmmm... en að einhverjum ástæðum
datt það upp fyrir með tímanum.

Hafið það ofsalega gott yfir hátíðarnar.. vona ég verði
á Eski um næstu jól!

Posted by: Auður | 24/12/2007

The comments are closed.