06/12/2007

Ég held ég sé ....

feig!!! eða segir maður það ekki þegar maður telur að maður muni kannski fara að deyja :p

Ég ákvað nefnilega að prufa að djúpsteikja í fyrsta skipti sjálf, hér hefur afar lítið verið um djúpsteikingar á mat en ef það hefur verið hefur Hlynzi séð um það ... nema hvað að ég tek málin í mínar hendur og ætla að prufa þetta sjálf... fyrst kom rosa mikill reykur... svo setti ég draslið í pottinn og þá fór að sjóða uppúr... og ég auðvitað fer að þurrka upp í óða önn... kviknar ekki í helvítis þurrkunni!!!  dúddamía og reykurinn!!! 

Ég náði nú að koma pottinum alelda ásamt tuskudruslunni í vaskinn... en þar stóð hann í soldinn tíma með eldglæringunum útum allt á meðan ég var að ákveða hvað ég ætti að gera... 

er það ekki annars þannig að ef maður hellir vatni á brennandi feiti að þá slökknar ekki... kviknar þá ekki bara meiri eldur? jæja mig minnir það allavega og þorði því ekki að taka sjensinn á því!  

eldurinn slokknaði að lokum... eftir að ég var búin að berja tuskuna með spaða í soldinn tíma :p

húsið var fullt af reyk og lyktin er ógeðsleg!  

og þar sem ég vinn á heilsugæslu hef ég greint mig með netta reykeitrun... meikar það ekki sens ;)

 

 

Comments

Bwahahaha sorrý en þetta er samt ógeðslega fyndið !!! Jú pottþétt með væga reykeitrun ;-)

Posted by: Rakel sæta | 07/12/2007

Já þér er fyrirgefið Rakel mín... en þetta er nú samt háalvarlegt mál ;)

Posted by: Agla | 07/12/2007

múawahahahahhahhhaha... Pottþétt reykeitrun !!!
sé þetta fyrir mér svona eins og þegar að þú dast í brekkunni í Oddskarði forðum daga !!!hahahahaha
Þú ert svo mikil brussa !!!!

Posted by: Bellz | 07/12/2007

Heyrðu góða mín! Ég segi þér nú bara upp hér með! Þú ert búin að vera mjög vond við mig í allan dag... ég er bara mjög sár yfir hvernig þú hagar þér ;)

Posted by: Agla | 07/12/2007

ó mæ!!!!! Ég mundi aldrei aftur þora að nota helv pottinn

Posted by: dilja | 08/12/2007

Ó mæ!! Ég mundi aldrei aftur þora að nota helv pottinn

Posted by: dilja | 08/12/2007

Klárlega reykeitrun! Þetta kennir þér vonandi að Hlynur á alfarið að sjá um eldamennskuna, hvort sem það er djúpsetiking eða soðin ýsa. Svona NY-skvísur eins og þú eiga ekki að sjást í eldhúsi nema til þess að borða matinn sem lagður hefur verið snyrtilega á borð fyri þig. Uppvask er þér heldur ekki samboðið. Ég mundi svo setja 112 í speed dial svona just in case!!

Posted by: Berglind Þ | 12/12/2007

Eru það nú vinkonur sem þú átt... Hlæja bara af þér og þú í bráðri lífshættu!!!
Ég stið Berglindi Þ heilshugar ;o) Hlynur eldar, þú spókar þig í NY
Já og 112 á speed dial, ekki spurning!!!

Posted by: Sigga Rósa | 13/12/2007

Þetta er svakalegt mál, vonandi ertu búin að jafna þig af reykeitruninni miklu :) en ég kanski tek þig á orðinu og kíki til þín fyrir ball, hljómar bara ansi vel... og hafðu það gott um jólin krúsidúllan mín ;)

Posted by: Margrét Sæný | 23/12/2007

The comments are closed.