04/12/2007

Að sjálfsögðu....

löngu komin heim frá New York gott fólk ;)

 

NY er æðisleg!  En hver sá sem ætlar að segja mér að það sé gott að fara þangað til að versla lýgur!

 

Systir mín orðaði það vel ... borgin er erfið!  Vegalengdirnar eru í stórum mælikvörðum þarna!  Jújú allar búðir sem þig langar í ... en nennirðu að labba marga kílómetra með pokana?  

Ef það rignir þarna þá er vonlaust að fá leigubíl!

 

Annars var ofsalega skemmtilegt hjá okkur systrum þarna!  Fórum útum allt... m.a New Jersey og Queens :)  

Svo að sjálfsögðu hitti ég Auði frænku! Ótrúlega skemmtiegt að hitta hana eins og venjulega :)

 

Búin að fljúga nokkrar flugferðir eftir að ég kom heim... ég er farin að hallast að því að ég sé að þróa með mér flughræðslu eftir atvikið sem ég lenti í áður en ég fór út!  Ekki skemmtilegt það!

 

Nú fer að líða að því að maðurinn minn fari að koma heim aftur :)  Úff hvað það verður næs!

Jólin að nálgast og bærinn orðinn nokkuð vel skreyttur.... ótrúlega gaman að taka rúnt með vinkonu og skoða hver skreytir flottast ;)  Er þó pínu svekkt yfir að ein frænka mín sem ég vil endilega hafa nálægt mér á jólunum ætlar bara að vera heima ... Adda þú veist hvern ég meina ;)  Langar að hafa þig á jólunum ... en það verður kannski seinna bara :p

Valhöll búin að opna!  Ótrúlega fínt og flott þarna og vona innilega að þetta fái að vera opið áfram þar sem vantar eitthvað athvarf fyrir fólk að koma saman!  Til hamingju með þetta Kiddi!

 

Um daginn þegar ég hélt ég væri að deyja í flugslysi þá var ég að hlusta á Bubba.  Ef fólk hefur ekki enn áttað sig á hvað hann er frábær tónlistarmaður þá endilega prufiði að setja nokkra diska á fóninn með honum (veit að Erna Hrund þarf ekkert að setja neina diska á enda gamall "fan" ;))  Ég get allavega sagt að ég hafi verið fegin að hafa verið búin að koma einhverjum plötum á mp3 spilarann minn þegar ég "var að fara að hrapa" því ef maður vill deyja við einhverja tónlist þá er þetta rétta tónlistin ;)

 

AgleBagle BubbaFan... ef það fór framhjá einhverjum :p 

Comments

Já ég skal muna að skella Bubba í ef ég fæ snert af bráðkveddu ;)

Posted by: Bella | 05/12/2007

las.. sjáumst 23 des :) með virtum frá miðnesheiði .. bivar

Posted by: bivar | 06/12/2007

Hæ ho honey
Tja já maður getur því miður ekki verið alls staðar og þetta árið ætla ég nú að vera heima hjá mér um jólin... það er hins vegar alltaf hægt að koma í heimsókn til mín í einhverri borgarferðinni... t.d. á leið til útlanda ... hmmm ;)

Posted by: Adda | 06/12/2007

Tad var lika frabaert ad sja ykkur Soru!
Mer finnst einmitt svo stuttar vegalengdir her.. hhmmm,
kannski ekki alltaf med mikid af pokum :)

Er lika Bubba fan, elska serstaklega Konu diskinn hans.

Kvedja til Eskifjardar (vildi oska eg vaeri tar!!!)

Posted by: Audur | 07/12/2007

The comments are closed.