07/11/2007

Well then....

I´m off to New York :)

Þá er bara komið að því .... eftir 2 tíma verð ég á Kef að fara loksins til New York...
Veit sossum ekkert við hverju á að búast af borginni.... en hef heyrt að hún sé æðisleg...
Vonandi verð ég ekki fyrir neinum vonbrigðum :p

Annars lenti ég í óskemmtilegri lífsreynslu í gær þegar ég ætlaði til Reykjavíkur....
Hélt hreinlega að mín síðasta stund væri að renna upp þegar flugfreyjan í vélinni
tilkynnti um nauðlendingu á landi... sá fram á að ef ég hefði þetta af þá þyrfti ég gistingu
hjá Portúgölunum á Kárahnjúkum... ef það eru einhverjir eftir :P
Annars var fólk alveg farið að búa sig undir það versta... okkur var tilkynnt að þegar við
yrðum látin fara útum neyðarútganga að þá mættum við ekki taka með okkur neinn handfarangur...
... ég stakk bara veskinu (in case að það væri sjoppa á hálendinu), farmiðanum til NY (ef ég kæmist aftur
til byggða) og símanum (svo ég gæti nú hringt og látið vita af mér :P) í úlpuvasann ;)
Eins gott að vera við öllu búin ;)

En við vonum nú að flugið út verði eitthvað betra :P

Wish me luck ;)

Comments

JESÚSMINNALMÁTTUGUR!!!
Ég held ég hefði bilast ef ég hefði lent í þessu...
Góða ferð til NY og endilega keyptu eitthvað fallegt handa mér í úttlandinu ;o)

Posted by: Sigga Rósa | 07/11/2007

GUÐ varstu ekki hræddd... ég las þetta á mbl í dag og fékk bara tremma við að lesa fréttina. Þú verður sko ekki fyrir vonbrigðum með NY .. yndisleg borg. YNDISLEG segi ég ;)
Hafðu það gott

Posted by: maja | 07/11/2007

týpískt þú að stinga veskinu í vasan !!! hahahahah
2 sem agla yfirgefur ekki peningarnir og gsm síminn !!

Samt gott að þú komst heilu á húfnu úr þessu öllu saman og velkomin heim frá NY :)

Posted by: Bella | 15/11/2007

The comments are closed.