09/10/2007

Eitthvað hef ég ....

vanmetið það að vera í skóla... já eða allavega vinnuna sem því fylgir....

ætlaði að vera svo dugleg að blogga...

það  hefur farið fyrir ofan garð og neðan sökum þess hvað er mikið að gera í skólanum... :p

En vonandi ber þetta einhvern ávöxt í staðinn ;)

 

annars auglýsi ég eftir einhverjum til að viðra mig ca einu sinni í viku... ég er orðin rykfallin á að hanga svona mikið heima hjá mér... og komin svona skápafýlulykt held ég bara líka :p

annars er það akureyris um helgina... á reyndar að fara annaðkveld en ég veit ekki alveg hvernig það fer... en það kemur allt í ljós ...

 

svo er það bara NY í nóvember... :) :) :) Ég skal viðurkenna að ég hlakka pínu til... :p

 

Venlig hilsen 

Comments

Sjæs New York oj þér!!! En já þetta með vanmatið á fylgifisk skólans, dúddamía ég á mér ekki líf hérna í Hafnafirðinum... Svo ég skil þig sko mjög svo vel, en vonandi verður vinnan bara þess virði ;) Gangi þér vel ljúfan :)

Posted by: Elsa | 10/10/2007

Njújork pjújork... Mig langar alls ekkert að fara til úttlanda, NEI NEI!!!
Annars vona ég bara að vinnan verði þess virði og þú fáir eitthvað klikkað skemmtilegt og vel launað að gera þegar þessu er öllu saman lokið!!!
Gangi þér alveg þrusuvel í þessu öllusaman!!!

Posted by: Sigga Rósa | 11/10/2007

Takk stelpur ;)

Mig langaði einmitt að segja um daginn þegar ég átti að fara á fund á laugardagskvöldi kl 8 vegna rannsóknarverkefnis að ég ætti mér líf... en svo sá ég að það þýddi ekkert fyrir mig að segja það því það er bara hreinlega ósatt :P

Posted by: Agla | 11/10/2007

ohhhh mig langar svo alltaf til NY
Gangi þér vel í skólanum, veit þú massar þetta!!!

Posted by: Dilja | 13/10/2007

Ég skal viðra þig hér í New York. Geggjaður árstími til viðrunar, síðustu helgi var 26 stiga hiti (celcius!!!) og nú er um 20... eitthvað smá á niðurleið en ekkert til að kvarta yfir.

Þekki lærilífið! Ég læri öll kvöld og alveg sérstaklega fös og lau :) júhú!!

Sjáumst eftir nokkra daga!!!

Posted by: Auður | 25/10/2007

ohhh hvað ég þekki þetta með skólann... og ohhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh hvað mig langar til NY

baráttukveðjur austur

Posted by: Adda | 26/10/2007

Það er nú alveg hægt að posta einu og einu bloggi þrátt fyrir skólastreð... Vakna bara fyrr á morgnana eða fara pínu seinna að sofa ;)

Lærdómsknús af Þjóðarbókhlöðunni

Elsa pelsa

Posted by: Elsa | 26/10/2007

The comments are closed.