04/09/2007
Spurningunni....
... hefur eigi verið svarað ennþá frá síðasta bloggi sko... hmmmm.... en allavega þá held ég áfram hér á meðan ég er ekki viss ;)
Fór á fyrirlestur í Stærðfræði í síðustu viku og þar sagði kennarinn að fyrsta önnin í fjarnámi færi yfirleitt í að læra að læra og læra að skipuleggja sig,..... og svei mér þá ef það er ekki bara rétt hjá kauða :p Þarf allavega alvarlega að læra að skipuleggja mig! En þetta hlýtur nú allt að reddast :)
Ég verð nú að segja frá nokkrum gullmolum sem komu frá nokkrum "ónefndum" aðilum úti á flórída .... :)
Eitt kvöldið vorum við að ræða erfðagalla... þá sagði ein ónefnd að í einni fjölskyldu sem hún þekkti væru 4 af hverjum 2 börnum sem fæddust með erfðagalla... HMMMMMMMMMMMM?????
Sonur minn drakk Mountain Dew eins og hann fengi greitt fyrir það í íspinnum ... eitt kvöldið var bróðir minn mikið að spá hvað þetta þýddi... og spurði okkur hvað dew þýddi eiginlega..?? ónefnd fóstursystir var eldsnögg að svara því að það þýddi Gyðingur :p Og restina af ferðinni drakk sonurinn FjallaGyðing með bestu lyst :)
Einn daginn fór ónefndur bróðir í búð og bað um "ice with a dive and run for the rest" eða á íslensku "ís með dýfu og hlaup fyrir afganginn" (en þessi saga er nú lygi... þó hann hafi nú verið að tala um þetta blessaður)
Well nóg í bili... ef ég ætla að læra að skipuleggja lærdóminn :p
00:58 Permalink | Comments (5) | Email this


Comments
Æ hvað er gaman að þú sért farin að blogga aftur :)
Koss og knús frá dk
D
Posted by: Dilja | 06/09/2007
Mér finnst svo gaman að þegar ég fór í pásu, lifnaðir þú við ;o)
Ég er nú samt að rembast við að koma mér í gírinn...
Posted by: Sigga Rósa | 07/09/2007
Hver er eiginlega þessi bróðir þinni ?
Posted by: bivar | 12/09/2007
blogga frekar á hér en á myspace-inu
Posted by: Dilja | 15/09/2007
mikið er ég ánægð að þú sért farin að blogga aftur !!
Var algjörlega hætt að vona að þú færir að blogga aftur og var sko bara ekkert að kíkja á þig ;)
Blogga hér ekki á myspaceinu
Posted by: Bellan | 18/09/2007
The comments are closed.