23/04/2008

Sala bjórs...

jókst um 5,7% á milli ára.... samkvæmt viðskiptablaðinu í gær ...

þeir sem þekkja mig grunar sjálfsagt að ég eigi stóran hluta af þessum prósentum ... og ég er reyndar alveg sannfærð um að það er rétt :p  enda fáir meiri bjórsvelgir en ég :o

 

10/04/2008

Er kominn tími....

á nýtt blogg eitthvað?

Bara að spá eftir komment frá Bellz nöldrara... svo er spurning hvort maður eigi ekki bara að fara að leggja þessu..

 

Annars lítið að frétta... alltaf eitthvað spennó að gerast en ... ekkert sem ég blogga um :p

 

Hlynzi minn loksins kominn úr 2 mánaða útleggðinni sinni...

Spurningin er hvert maður fer eiginlega í sumarfrí?

Einhverjar hugmyndir?

 

Ps. Audrey er löngu dauð :P

26/12/2007

Aldrei hefði ég...

trúað því að mér tækist þetta....

En hún Audrey blómstrar bara eins og blóm í haga hjá mér :)

 

Ég er stolt af mér :p 

24/12/2007

Jólin ......

eru að koma....

og mér finnst eins og þau séu nýbúin....

held ég komist ekki í jólafílinginn samt fyrr en ég finn rjúpnalyktina á eftir!  (liggur við að maður slefi þegar að maður hugsar um rjúpurnar )

annars er allt orðið voða jóló núna... snjórinn lét sjá sig í morgun... vonandi að hann nái nú að haldast yfir jólin!  

 

allt orðið voða skreytt og fínt ... ég reyndar gerði eitt nýtt þessi jólin sem ég hef ekki gert áður... ég keypti mér ofsa fallega plöntu... hún var bara svo fín og sæt að ég gat ekki sleppt henni ... hún heitir Audrey... eða Auður á íslenskunni... en við Auður tökum bara einn dag í einu ... mér hefur alltaf reynst frekar erfitt að halda lífinu í svona dóti... er ekki með græna fingur... en þessi deyr sko eftir jól... þannig að ég vonast til að geta haldið henni á lífi þangað til ... eins og ég segi ... einn dagur í einu :p

 

gleðileg jól allir :) 

06/12/2007

Ég held ég sé ....

feig!!! eða segir maður það ekki þegar maður telur að maður muni kannski fara að deyja :p

Ég ákvað nefnilega að prufa að djúpsteikja í fyrsta skipti sjálf, hér hefur afar lítið verið um djúpsteikingar á mat en ef það hefur verið hefur Hlynzi séð um það ... nema hvað að ég tek málin í mínar hendur og ætla að prufa þetta sjálf... fyrst kom rosa mikill reykur... svo setti ég draslið í pottinn og þá fór að sjóða uppúr... og ég auðvitað fer að þurrka upp í óða önn... kviknar ekki í helvítis þurrkunni!!!  dúddamía og reykurinn!!! 

Ég náði nú að koma pottinum alelda ásamt tuskudruslunni í vaskinn... en þar stóð hann í soldinn tíma með eldglæringunum útum allt á meðan ég var að ákveða hvað ég ætti að gera... 

er það ekki annars þannig að ef maður hellir vatni á brennandi feiti að þá slökknar ekki... kviknar þá ekki bara meiri eldur? jæja mig minnir það allavega og þorði því ekki að taka sjensinn á því!  

eldurinn slokknaði að lokum... eftir að ég var búin að berja tuskuna með spaða í soldinn tíma :p

húsið var fullt af reyk og lyktin er ógeðsleg!  

og þar sem ég vinn á heilsugæslu hef ég greint mig með netta reykeitrun... meikar það ekki sens ;)

 

 

04/12/2007

Að sjálfsögðu....

löngu komin heim frá New York gott fólk ;)

 

NY er æðisleg!  En hver sá sem ætlar að segja mér að það sé gott að fara þangað til að versla lýgur!

 

Systir mín orðaði það vel ... borgin er erfið!  Vegalengdirnar eru í stórum mælikvörðum þarna!  Jújú allar búðir sem þig langar í ... en nennirðu að labba marga kílómetra með pokana?  

Ef það rignir þarna þá er vonlaust að fá leigubíl!

 

Annars var ofsalega skemmtilegt hjá okkur systrum þarna!  Fórum útum allt... m.a New Jersey og Queens :)  

Svo að sjálfsögðu hitti ég Auði frænku! Ótrúlega skemmtiegt að hitta hana eins og venjulega :)

 

Búin að fljúga nokkrar flugferðir eftir að ég kom heim... ég er farin að hallast að því að ég sé að þróa með mér flughræðslu eftir atvikið sem ég lenti í áður en ég fór út!  Ekki skemmtilegt það!

 

Nú fer að líða að því að maðurinn minn fari að koma heim aftur :)  Úff hvað það verður næs!

Jólin að nálgast og bærinn orðinn nokkuð vel skreyttur.... ótrúlega gaman að taka rúnt með vinkonu og skoða hver skreytir flottast ;)  Er þó pínu svekkt yfir að ein frænka mín sem ég vil endilega hafa nálægt mér á jólunum ætlar bara að vera heima ... Adda þú veist hvern ég meina ;)  Langar að hafa þig á jólunum ... en það verður kannski seinna bara :p

Valhöll búin að opna!  Ótrúlega fínt og flott þarna og vona innilega að þetta fái að vera opið áfram þar sem vantar eitthvað athvarf fyrir fólk að koma saman!  Til hamingju með þetta Kiddi!

 

Um daginn þegar ég hélt ég væri að deyja í flugslysi þá var ég að hlusta á Bubba.  Ef fólk hefur ekki enn áttað sig á hvað hann er frábær tónlistarmaður þá endilega prufiði að setja nokkra diska á fóninn með honum (veit að Erna Hrund þarf ekkert að setja neina diska á enda gamall "fan" ;))  Ég get allavega sagt að ég hafi verið fegin að hafa verið búin að koma einhverjum plötum á mp3 spilarann minn þegar ég "var að fara að hrapa" því ef maður vill deyja við einhverja tónlist þá er þetta rétta tónlistin ;)

 

AgleBagle BubbaFan... ef það fór framhjá einhverjum :p 

07/11/2007

Well then....

I´m off to New York :)

Þá er bara komið að því .... eftir 2 tíma verð ég á Kef að fara loksins til New York...
Veit sossum ekkert við hverju á að búast af borginni.... en hef heyrt að hún sé æðisleg...
Vonandi verð ég ekki fyrir neinum vonbrigðum :p

Annars lenti ég í óskemmtilegri lífsreynslu í gær þegar ég ætlaði til Reykjavíkur....
Hélt hreinlega að mín síðasta stund væri að renna upp þegar flugfreyjan í vélinni
tilkynnti um nauðlendingu á landi... sá fram á að ef ég hefði þetta af þá þyrfti ég gistingu
hjá Portúgölunum á Kárahnjúkum... ef það eru einhverjir eftir :P
Annars var fólk alveg farið að búa sig undir það versta... okkur var tilkynnt að þegar við
yrðum látin fara útum neyðarútganga að þá mættum við ekki taka með okkur neinn handfarangur...
... ég stakk bara veskinu (in case að það væri sjoppa á hálendinu), farmiðanum til NY (ef ég kæmist aftur
til byggða) og símanum (svo ég gæti nú hringt og látið vita af mér :P) í úlpuvasann ;)
Eins gott að vera við öllu búin ;)

En við vonum nú að flugið út verði eitthvað betra :P

Wish me luck ;)

09/10/2007

Eitthvað hef ég ....

vanmetið það að vera í skóla... já eða allavega vinnuna sem því fylgir....

ætlaði að vera svo dugleg að blogga...

það  hefur farið fyrir ofan garð og neðan sökum þess hvað er mikið að gera í skólanum... :p

En vonandi ber þetta einhvern ávöxt í staðinn ;)

 

annars auglýsi ég eftir einhverjum til að viðra mig ca einu sinni í viku... ég er orðin rykfallin á að hanga svona mikið heima hjá mér... og komin svona skápafýlulykt held ég bara líka :p

annars er það akureyris um helgina... á reyndar að fara annaðkveld en ég veit ekki alveg hvernig það fer... en það kemur allt í ljós ...

 

svo er það bara NY í nóvember... :) :) :) Ég skal viðurkenna að ég hlakka pínu til... :p

 

Venlig hilsen 

04/09/2007

Spurningunni....

... hefur eigi verið svarað ennþá frá síðasta bloggi sko... hmmmm....  en allavega þá held ég áfram hér á meðan ég er ekki viss ;)

Fór á fyrirlestur í Stærðfræði í síðustu viku og þar sagði kennarinn að fyrsta önnin í fjarnámi færi yfirleitt í að læra að læra og læra að skipuleggja sig,..... og svei mér þá ef það er ekki bara rétt hjá kauða :p  Þarf allavega alvarlega að læra að skipuleggja mig!  En þetta hlýtur nú allt að reddast :)

Ég verð nú að segja frá nokkrum gullmolum sem komu frá nokkrum "ónefndum" aðilum úti á flórída .... :)

Eitt kvöldið vorum við að ræða erfðagalla... þá sagði ein ónefnd að í einni fjölskyldu sem hún þekkti væru 4 af hverjum 2 börnum sem fæddust með erfðagalla... HMMMMMMMMMMMM?????

Sonur minn drakk Mountain Dew eins og hann fengi greitt fyrir það í íspinnum ... eitt kvöldið var bróðir minn mikið að spá hvað þetta þýddi... og spurði okkur hvað dew þýddi eiginlega..??  ónefnd fóstursystir var eldsnögg að svara því að það þýddi Gyðingur :p  Og restina af ferðinni drakk sonurinn FjallaGyðing með bestu lyst :)

Einn daginn fór ónefndur bróðir í búð og bað um "ice with a dive and run for the rest"  eða á íslensku "ís með dýfu og hlaup fyrir afganginn" (en þessi saga er nú lygi... þó hann hafi nú verið að tala um þetta blessaður)

Well nóg í bili... ef ég ætla að læra að skipuleggja lærdóminn :p

 

01/09/2007

Engir páskar lengur ....

að mér skilst :p

 

Enda nýkomin heim úr sumarfríi ;)

Á maður ekki bara að blogga hér frekar en á mæspeis?  Er nebblega orðin svo tæknó að ég er komin með svoleis :p

Ef einhver kíkir hérna ennþá endilega kommentið hvort ég á að blogga hér eða á mæspeis (síðan þar er lokuð)

 

Over and Out

Agla sem er komin úr laaaangrrriii bloggpásu:)

1 2 3 4 5 6 7 8 Next